Alþjóðlegt ár stjörnufræðinnar 2009 (the International Year of Astronomy 2009: IYA2009) er friðsamleg samvinna þjóða þar sem leitað er svara við spurningunni um rætur okkar og upphaf í alheimi, sameiginlega arfleifð allra jarðarbúa. Stjarnvísindin eru fulltrúi mörg þúsund ára samvinnu, óháð landamærum, kynferði, aldri, menningu og kynþáttum. Í þeim skilningi er stjörnufræði gott dæmi um það hvernig raunvísindin geta stuðlað að alþjóðasátt og samvinnu. Nánari upplýsingar um alþjóðaárið er að finna hér.

Haldið er upp á ár stjörnufræðinnar á alþjóðavettvangi en megináherslan er á atburði og verkefni í einstökum löndum. Hver þjóð hefur sína landsnefnd (e. National Node), sem hefur umsjón með skipulagi og aðgerðum heima fyrir. Nefndin hefur frumkvæði að samvinnu stjarnvísindamanna, stjörnuáhugamanna, menningarstofnana, menntastofnana og fjölmiðla við undirbúning ársins. Í íslensku landsnefndinni eru Einar H. Guðmundsson (formaður), Gunnlaugur Björnsson, Snævarr Guðmundsson, Sverrir Guðmundsson, Sævar Helgi Bragason og Vilhelm S. Sigmundsson.
Á árinu er íslenskum almenningi boðið að hlýða á fyrirlestra um það sem efst er á baugi í stjarnvísindum nútímans. Mönnum gefst einnig kostur á fræðslu um stjörnusjónauka og þátttöku í stjörnuteitum þar sem stjörnuhiminninn verður skoðaður. Þá hefur verið komið á samvinnu stjarnvísindamanna og stjörnuáhugamanna við kennara og nemendur í skólum landsins. Einnig er ætlunin að fræða landsmenn um sögu stjarnvísinda á Íslandi.
Frumkvæðið að ári stjörnufræðinnar áttu Alþjóðasamband stjarnvísindamanna (the International Astronomical Union: IAU) og UNESCO. Í alþjóðasambandinu eru um 10.000 stjarnvísindamenn frá öllum löndum. Tilgangur sambandsins er að stuðla að vexti og viðgangi stjarnvísinda á alþjóðavettvangi. Að auki sér sambandið um að velja nöfn á öll hugsanleg stjarnfræðileg fyrirbæri. Sambandið var stofnað 1919 og er stærsta fageining heims í stjarnvísindum.
Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness, 600279-0339, Valhúsaskóla v. Skólabraut, 170 Seltjarnarnes
Stjarnvísindafélag Íslands (The Icelandic Astronomical Society), Dunhaga 3, 107 Reykjavík