Alþjóðlegt ár stjörnufræðinnar 2009

Íslensk IYA2009 vefsíða

Í tilefni af alþjóðlegu ári stjörnufræðinnar 2009 hefur verið opnuð ný vefsíða á slóðinni 2009.is.

Síðan verður í stöðugri endurnýjun og þar munu birtast fréttir og upplýsingar um atburði stjörnufræðiársins, bæði hér heima og erlendis. Að auki verður boðið uppá margskonar fræðslu um stjarnvísindi fyrir almenning.

Fyrir hönd landsnefndarinnar um ár stjörnufræðinnar,
Einar H. Guðmundsson

Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness, 600279-0339, Valhúsaskóla v. Skólabraut, 170 Seltjarnarnes
Stjarnvísindafélag Íslands (The Icelandic Astronomical Society), Dunhaga 3, 107 Reykjavík