Nú þegar árið 2009 er að ganga í garð eru stjörnuskoðendur um heim allan önnum kafnir við að undirbúa alþjóðlegt stjörnufræðiár. Hvorki meira né minna en 135 þjóðir hafa tekið höndum saman til að kynna jarðarbúum alheiminn. Á næstu 12 mánuðum verður efnt til margs konar viðburða er tengjast stjörnufræði og heimsfræði.
Alþjóðlegt ár stjörnufræðinnar 2009 (The International Year of Astronomy 2009: IYA2009) er haldið að frumkvæði Alþjóðasambands stjarnvísindamanna (the International Astronomical Union: IAU) og UNESCO (the United Nations Educational, Scientific and Cultural Organization) undir kjörorðinu Undur alheimsins.
Opnunarhátíð stjörnufræðiársins verður haldin í París dagana 15. og 16. janúar og er fjölmiðlum boðið að vera viðstaddir. Þar munu margir þekktir gestir halda erindi, meðal annars Nóbelsverðlaunahafar. Einnig verður haft sjónvarpssamband við stjarnvísindamenn að störfum á fjarlægum athugunarstöðum. Nokkrar þjóðir halda jafnframt sína eigin opnunarhátíð í janúar og febrúar til þess að leggja áherslu á mikilvægi stjörnufræðiársins. Ýmislegt verður á döfinni áður en árið verður formlega sett. Í mörgum löndum getur fólk búist við því að sjá stjörnusjónauka á götum úti strax á nýársdag. Sólareðlisfræðihópur IYA2009 hefur undirbúið alþjóðlegt átak meira en 30 þjóða þar sem stjörnuáhugamenn á meira en 150 stöðum koma fyrir sjónaukum sínum á gangstéttum og í vísindaverum þar sem fólk getur komið til að skoða sólina með sérstökum öryggisbúnaði.
Stjörnudagbókin (The Cosmic Diary) er eitt af mörgum verkefnum stjörnufræðiársins. Vefsíða dagbókarinnar verður opnuð á nýársdag. Verkefnið tengist daglegu lífi stjarnvísindamanna. Í hópi rúmlega 50 bloggara eru sérfræðingar frá meira en 35 þjóðum, sem starfa við stofnanir eins og Evrópsku stjörnuathugunarstöðina á suðurhveli (ESO), Bandarísku geimvísindastofnunina (NASA), Evrópsku geimvísindastofnunina (ESA) og Japönsku geimvísindastofnunina (JAXA). Vísindamennirnir munu allir blogga um sjálfa sig, vinnu sína og rannsóknarverkefni. Þarna fær almenningur tækifæri til að fylgjast með því hvernig það er að vera stjarnvísindamaður og hvernig staðið er að mikilvægum rannsóknum í stjarnvísindum. Annað verkefni stjörnufræðiársins er kallað 365 stjarnvísindadagar (365 Days of Astronomy). Þar er um að ræða dagleg hlaðvörp (podcasts) um stjörnufræði og umsjónarmenn verða frá öllum heimshornum.
Hundrað stjörnufræðistundir (100 Hours of Astronomy) er verkefni stjörnufræðiársins sem standa mun dagana 2. til 5. apríl 2009. Þar fer fram margs konar kynning á stjörnufræði, meðal annars í gegnum vefvarp (webcasts), stjörnuathuganir og fleira. Eitt helsta markmiðið er að gefa sem flestum tækifæri til að kíkja í stjörnusjónauka, líkt og Galíleó gerði í fyrsta sinn fyrir 400 árum.
Verkefnið Frá jörðinni til alheimsins (From Earth to the Universe) er sýningarátak á vegum IYA2009 þar sem risastórum ljósmyndum af stjarnfræðilegum fyrirbærum er komið fyrir í almenningsgörðum, listasöfnum, verslunarmiðstöðvum og lestarstöðvum. Um 30 þjóðir vinna nú að undirbúningi slíkra sýninga með 25 til 100 myndum á hverjum stað. Áætlað er að um helmingur þjóðanna muni opna sínar sýningar í ársbyrjun 2009. Verkefnið verður kynnt sérstaklega á opnunarhátíðinni í París í janúar.
Á ári stjörnufræðinnar verður reynt að vekja athygli almennings á ljósmengun og hvernig hún dregur úr fegurð næturhiminsins, einkum á þéttbýlissvæðum. Í verkefninu Dimmur næturhiminn (Dark Skies Awareness) er ráðist beint að vandanum, meðal annars með því að efna til stjörnutalningarkvölda þar sem almenningur er hvattur til að kanna hversu margar stjörnur má sjá með berum augum á ákveðnum hluta hvelfingarinnar. Fólk verður yfirleitt mjög hissa þegar niðurstöður þess eru bornar saman við gögn frá stöðum sem eru algjörlega lausir við ljósmengun. Talningarkvöldin hefjast í janúar.
Lista yfir viðburði stjörnufræðiársins má finna á vefsíðunni www.astronomy2009.org/highlights. Þaðan má einnig komast í samband við landsnefndir þeirra fjölmörgu þjóða sem taka þátt í átakinu. Landsnefndirnar hafa umsjón með þeim atburðum sem boðið er uppá í hverju landi fyrir sig. Vefsíða íslensku landsnefndarinnar er www.2009.is.
Ýmsir áhugaverðir atburðir verða á stjörnuhimninum árið 2009. Í Asíu má til dæmis fylgjast með lengsta almyrkva sem verður á sólu á þessari öld. Hann verður 22. júlí og stendur að hámarki í 6 mínútur og 39 sekúndur á mjórri ræmu sem liggur yfir lönd eins og Indland, Bangladess og Kína. Um miðjan nóvember er reiknað með að hin árlega loftsteinadrífa, Leonítar, verði óvenju öflug með meira en 500 stjörnuhröpum á klukkustund. Um miðjan október ætti Júpíter að sjást vel skömmu eftir sólsetur á norðurhveli. Þá gefst gott tækifæri fyrir almenning til að skoða þessa risastóru reikistjörnu og tungl hennar í sjónauka.
Á ári stjörnufræðinnar verður reynt að fá almenning til þess að taka þátt í hinum ýmsu verkefnum. Í því átaki leika stjörnuáhugamenn stórt hlutverk og munu þeir skipuleggja og stjórna fjölda skemmtilegra viðburða. Nú þegar taka þúsundir þeirra þátt í undirbúningnum á alþjóðavettvangi og með þátttöku sinni mynda þeir stærsta tengslanet sem um getur í stjarnvísindum. Hér á landi er það fyrst og fremst Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness sem sér um þennan þátt.
Forseti Alþjóðasambands stjarnvísindamanna, Catherine Cesarsky, segir: "135 þjóðir hafa ákveðið að taka þátt í Alþjóðlegu ári stjörnufræðinnar og þær leggjast nú á eitt til þess að gera stjarnvísindi aðgengileg almenningi. IYA2009 mun efla tengslin milli almenns raunvísindanáms og sértæks vísindastarfs, auka fjölda nemenda á sviðum vísinda og tækni og kynda undir áhuga á símenntun".
Í ljósi allra þeirra viðburða sem í vændum eru má fullyrða að nú gefist kjörið tækifæri til þess að læra meira um alheiminn og stöðu okkar í honum. Alþjóðlegt ár stjörnufræðinnar 2009 opnar gluggann að Undrum alheimsins 1. janúar 2009.
Upplýsingar um helstu atburði ársins hér á landi er að finna á vefsíðunni www.2009.is.
###
Á alþjóðlegu ári stjörnufræðinnar 2009 eru liðin 400 ár frá því Galíleó Galíleí gerði sínar fyrstu stjörnuathuganir með aðstoð sjónauka. Árið er að grunni til alþjóðleg hátíð þar sem áhersla er lögð á stjarnvísindi og framlag þeirra til samfélags og menningar. Hátíðarhöldin endurspeglast í viðburðum í einstökum bæjum og byggðarlögum, á landsvísu og á alþjóðlegum vettvangi.
Alþjóðasamband stjarnvísindamanna (IAU) eru alþjóðasamtök sem telja um 10.000 stjarnvísindamenn frá öllum löndum. Tilgangur sambandsins er að stuðla að vexti og viðgangi stjarnvísinda á alþjóðavettvangi. Að auki sér sambandið um að velja nöfn á öll hugsanleg stjarnfræðileg fyrirbæri. Sambandið, sem stofnað var 1919, er stærsta fageining heims í stjarnvísindum.
Kynningarmynd um stjörnufræðiárið (IYA2009 welcome video): Myndina er hægt að nálgast hjá www.astronomy2009.org. Kynnir er Catherine Cesarsky, forseti IAU. Myndin er um það bil 5 mínútur að lengd og er fáanleg í enskri, franskri og spænskri útgáfu.
###
Íslenskar:
Á vegum IYA2009, UNESCO og IAU:
###
Hér heima:
Einar H. Guðmundsson
Formaður íslensku IYA2009-landsnefndarinnar
og formaður Stjarnvísindafélags Íslands
Raunvísindastofnun Háskólans
Dunhaga 3, 107 Reykjavík
Símar: 5254800/4811 og 8626192
Tölvupóstfang: einar[hjá]raunvis.hi.is
Sævar Helgi Bragason
Formaður Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness
Sími: 8961984
Tölvupóstfang: saevar[hjá]stjornuskodun.is
Erlendis:
IAU IYA2009 Coordinator
Pedro Russo
ESO ePOD
Karl-Schwarzschild-Strasse 2
D-85748 Garching bei München
Germany
Tel: +49 89 320 06 195
Cell: +351 96285 4775 / +49 17661100211
Fax: +49 89 320 23 62
E-mail:
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
IAU Press Officer
Lars Lindberg Christensen
ESO ePOD, Garching, Germany
Tel: +49 89 3200 6761
Cellular: +49-173-3872-621
E-mail:
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
Yolanda Berenguer
UNESCO Focal Point for the International Year of Astronomy 2009
UNESCO HQ, Paris
Tel: +33-1-45684171
E-mail:
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
Dr. Karel A. van der Hucht
General Secretary, International Astronomical Union
IAU Secretariat, Paris, France
Tel: +33-1-43-25-83-58
E-mail:
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness, 600279-0339, Valhúsaskóla v. Skólabraut, 170 Seltjarnarnes
Stjarnvísindafélag Íslands (The Icelandic Astronomical Society), Dunhaga 3, 107 Reykjavík