Alþjóðlegt ár stjörnufræðinnar 2009

Fyrirlestur um uppruna frumefnanna laugardaginn 7. mars kl. 14:00

Annað erindið í fyrirlestraröðinni ,,Undur veraldar: Undur alheimsins”, sem Stjarnvísindafélag Íslands og Raunvísindadeild Háskóla Íslands efna til í tilefni af alþjóðlegu ári stjörnufræðinnar, verður haldið laugardaginn 7. mars klukkan 14:00. Einar H. Guðmundsson prófessor í stjarneðlisfræði við Háskóla Íslands flytur þá erindi sem hann nefnir ,,Uppruni frumefnanna”. Venju samkvæmt verður fyrirlesturinn í stofu 132 í Öskju, Náttúrufræðihúsi Háskóla Íslands.

Í umhverfi okkar nær og fjær er að finna ótrúlegan fjölda efna og efnasambanda. Mörg þeirra eru hluti af náttúrunni en önnur eru manngerð. Öll eru þau þó samsett úr tiltölulega fáum frumefnum. Eðli frumefnanna ræðst svo aftur af eiginleikum rafeindaþyrpinga á braut um atómkjarna.

Menn hafa lengi velt fyrir sér uppruna frumefnanna, en það var ekki fyrr en miðja tuttugustu öld sem loksins tókst að svara þeirri mikilvægu spurningu. Svarið byggðist meðal annars á afstæðiskenningunni, hinum nýja skammtaskilningi á innviðum atómkjarna og miklum framförum í stjarnvísindum. Sýnt var fram á að léttustu atómkjarnarnir eiga uppruna sinn í frumheimi en hinir þyngri í sólstjörnum á ýmsum þróunarstigum.

Í fyrirlestrinum verður fjallað um þessa myndunarsögu frumefnanna í stuttu og frekar einföldu máli.

# # #

Til blaðamanna
Alþjóðlegt ár stjörnufræðinnar 2009 (The International Year of Astronomy 2009: IYA2009) er haldið að frumkvæði Alþjóðasambands stjarnvísindamanna (the International Astronomical Union: IAU) og UNESCO (the United Nations Educational, Scientific and Cultural Organization) undir kjörorðinu Undur alheimsins.

Á alþjóðlegu ári stjörnufræðinnar 2009 eru liðin 400 ár frá því Galíleó Galíleí gerði sínar fyrstu stjörnuathuganir með aðstoð sjónauka. Árið er að grunni til alþjóðleg hátíð þar sem áhersla er lögð á stjarnvísindi og framlag þeirra til samfélags og menningar. Hátíðarhöldin endurspeglast í viðburðum í einstökum bæjum og byggðarlögum, á landsvísu og á alþjóðlegum vettvangi.

Á ári stjörnufræðinnar verður reynt að fá almenning til þess að taka þátt í hinum ýmsu verkefnum. Í því átaki leika stjörnuáhugamenn stórt hlutverk og munu þeir skipuleggja og stjórna fjölda skemmtilegra viðburða. Nú þegar taka þúsundir þeirra þátt í undirbúningnum á alþjóðavettvangi og með þátttöku sinni mynda þeir stærsta tengslanet sem um getur í stjarnvísindum. Hér á landi er það fyrst og fremst Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness sem sér um þennan þátt.

Frekari upplýsingar:

Einar H. Guðmundsson
Formaður íslensku IYA2009-landsnefndairnnar
og formaður Stjarnvísindafélags Íslands
Raunvísindastofnun Háskólans
Dunhaga 3, 107 Reykjavík.
Símar: 5255800/4811 og 8626192
Tölvupóstfang: einar[hjá]raunvis.hi.is

Gunnlaugur Björnsson
Stjarneðlisfræðingur
Raunvísindastofnun Háskólans
Dunhaga 3, 107 Reykjavík
Tölvupóstfang: gulli[hjá]raunvis.hi.is

Sævar Helgi Bragason
Formaður Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness
Sími: 896-1984
Tölvupóstfang: saevar[hjá]stjornuskodun.is

Gagnlegar vefsíður

Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness, 600279-0339, Valhúsaskóla v. Skólabraut, 170 Seltjarnarnes
Stjarnvísindafélag Íslands (The Icelandic Astronomical Society), Dunhaga 3, 107 Reykjavík