Alþjóðlegt ár stjörnufræðinnar 2009

Fyrirlestur um stjarnvísindi framtíðarinnar laugardaginn 21. mars kl. 14:00

Johannes Andersen

Þriðja erindið í fyrirlestraröðinni ,,Undur veraldar: Undur alheimsins”, sem Stjarnvísindafélag Íslands og Raunvísindadeild Háskóla Íslands efna til í tilefni af alþjóðlegu ári stjörnufræðinnar, fer fram laugardaginn 21. mars klukkan 14:00. Johannes Andersen prófessor í stjörnufræði við Kaupmannahafnarháskóla flytur þá erindi sem hann nefnir ,,Framtíð evrópskra og norrænna stjarnvísinda”. Venju samkvæmt verður fyrirlesturinn í stofu 132 í Öskju, Náttúrufræðihúsi Háskóla Íslands.

Fyrir fimmtíu árum stóðu evrópsk stjarnvísindi ekki ýkja framarlega, en í dag skipa þau sér fremst í flokk og eru raunar leiðandi á mörgum sviðum. Þessi breyting hefur orðið vegna þess að evrópskir stjarnvísindamenn hafa bæði lært að starfa saman og að leggjast á eitt, sérstaklega í Evrópsku Stjörnustöðina á suðurhveli (European Southern Observatory, ESO) og Geimstofnun Evrópu (European Space Agency, ESA), en báðar stofnanirnar hafa nú uppi metnaðarfullar áætlanir um ný risaverkefni. Til þess að þessi draumaverkefni geti orðið að veruleika þarf umtalsvert meiri skipulagningu og samvinnu sem og aðgang að fjármagni í Evópu. Nú hafa ýmsar stofnanir og rannsóknasjóðir um evrópsk stjarnvísindi, ESO og ESA þeirra á meðal, sameinað krafta sína og hrundið af stað átaki sem kallast ASTRONET. Sá hópur sendi nýlega frá sér 25 ára áætlun um þróun evrópskra stjarnvísinda. Í fyrirlestrinum verður sagt frá þessari áætlun, nokkrum af áhugaverðustu nýju verkefnunum og því hlutverki sem norræn samvinna getur leikið í þeirri framtíð sem þarna er dregin upp.

Johannes Andersen er prófessor í stjörnufræði við Kaupmannahafnarháskóla. Rannsóknir hans beinast að þróun Vetrarbrautarinnar okkar og stjarna hennar. Hann er framkvæmdastjóri Norræna stjörnusjónaukans á La Palma, einni Kanaríeyjanna og er formaður ASTRONET hópsins.

# # #

Til blaðamanna
Alþjóðlegt ár stjörnufræðinnar 2009 (The International Year of Astronomy 2009: IYA2009) er haldið að frumkvæði Alþjóðasambands stjarnvísindamanna (the International Astronomical Union: IAU) og UNESCO (the United Nations Educational, Scientific and Cultural Organization) undir kjörorðinu Undur alheimsins.

Á alþjóðlegu ári stjörnufræðinnar 2009 eru liðin 400 ár frá því Galíleó Galíleí gerði sínar fyrstu stjörnuathuganir með aðstoð sjónauka. Árið er að grunni til alþjóðleg hátíð þar sem áhersla er lögð á stjarnvísindi og framlag þeirra til samfélags og menningar. Hátíðarhöldin endurspeglast í viðburðum í einstökum bæjum og byggðarlögum, á landsvísu og á alþjóðlegum vettvangi.

Á ári stjörnufræðinnar verður reynt að fá almenning til þess að taka þátt í hinum ýmsu verkefnum. Í því átaki leika stjörnuáhugamenn stórt hlutverk og munu þeir skipuleggja og stjórna fjölda skemmtilegra viðburða. Nú þegar taka þúsundir þeirra þátt í undirbúningnum á alþjóðavettvangi og með þátttöku sinni mynda þeir stærsta tengslanet sem um getur í stjarnvísindum. Hér á landi er það fyrst og fremst Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness sem sér um þennan þátt.

Frekari upplýsingar:

Gunnlaugur Björnsson
Stjarneðlisfræðingur
Raunvísindastofnun Háskólans
Dunhaga 3, 107 Reykjavík
Tölvupóstfang: gulli[hjá]raunvis.hi.is

Sævar Helgi Bragason
Formaður Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness
Sími: 896-1984
Tölvupóstfang: saevar[hjá]stjornuskodun.is

Gagnlegar vefsíður

Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness, 600279-0339, Valhúsaskóla v. Skólabraut, 170 Seltjarnarnes
Stjarnvísindafélag Íslands (The Icelandic Astronomical Society), Dunhaga 3, 107 Reykjavík