
Í tilefni af Alþjóðlegu ári stjörnufræðinnar 2009 er efnt til verkefnis sem nefnist 100 stundir af stjörnufræði (100 Hours of Astronomy). Verkefnið er á góðri leið með að verða stærsta almenna vísindamiðlunarverkefni allra tíma en yfir 130 þjóðir standa fyrir meira en 1500 viðburðum af þessu tilefni. Talið er að yfir ein milljón manna um allan heim muni taka þátt með einhverjum hætti. Hér á Íslandi sjá Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness og Stjörnufræðivefurinn um skipulagningu verkefnisins.
Eins og nafnið gefur til kynna stendur verkefnið yfir í fjóra sólarhringa, milli 2. og 5. apríl 2009. Á þessu tímabili mun stjörnuáhugafólk um heim allan deila þekkingu sinni á undrum alheimsins. Fjölmargir fá í fyrsta sinn tækifæri til þess að líta stjörnuhimininn augum í stjörnusjónauka. Fyrir aðra er þetta kjörið tækifæri til þess að miðla þekkingu og áhuga til fólks á öllum aldri sem þyrstir í fróðleik um undur alheimsins.
Föstudaginn 3. apríl kl. 09:00 að íslenskum tíma hefst vefvarp sem nefnist ,,Umhverfis hnöttinn á 80 sjónaukum” og stendur yfir í sólarhring. Náttmyrkrinu verður fylgt umhverfis hnöttinn með viðkomu í nokkrum af stærstu stjörnuathugunarstöðvum heims. Áhorfendur um allan heim geta fylgst með stjörnufræðingum við störf sín, sent þeim spurningar og skilaboð og skoðað glænýjar ljósmyndir af alheiminum! Hver einasta heimsálfa er heimsótt, Suðurheimskautslandið þar með talið. Meðal þeirra sjónauka sem heimsóttir verða eru Gemini og Keck sjónaukarnir á Hawaii, Ensk-ástralski sjónaukinn, sjónaukar á Kanaríeyjum, Stóri-Suðurafríski sjónaukinn, Very Large sjónaukarnir í Chile og geimsjónaukar eins og Hubble svo fáeinir séu nefndir. Allir sem hafa vafra sem styður Flash geta fylgst með vefvarpinu á heimasíðu verkefnisins en einnig á Stjörnufræðivefnum – www.stjornuskodun.is/100.
Laugardaginn 4. apríl munu nemendur í 7. bekk í Melaskóla setja upp líkan af sólkerfinu í miðbæ Reykjavíkur. Fyrst verður safnast saman á Ingólfstorgi í kringum smækkaða útgáfu af sólinni. Klukkan 11 verður síðan lagt af stað og gengið eftir Austurstræti og upp Laugaveginn þar sem reikistjörnunum verður raðað upp í réttum stærðarhlutföllum. Þeir sem eru í miklu stuði geta gengið alla leiðina upp á Hlemm þar sem Neptúnus lendir samkvæmt líkaninu!
Við sólsetur 4. apríl hefst stjörnuskoðunarkvöld fyrir almenning um heim allan. Hér á landi bjóða stjörnuáhugamenn í Stjörnuskoðunarfélagi Seltjarnarness öllum áhugasömum að koma og skoða gígana á tunglinu og hringa Satúrnusar með stærsta sjónauka landsins. Stjörnuskoðunin fer fram í aðstöðu félagsins í Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi og hefst kl. 21:00.
100 stundir af stjörnufræði er einstakur viðburður sem sameinar fólk um allan heim í einu áhugamáli. Vertu þátttakandi í þessum heimsviðburði!
Nánari upplýsingar er að finna á www.stjornuskodun.is/100 og astro.is.
# # #
Til blaðamanna
Alþjóðlegt ár stjörnufræðinnar 2009 (The International Year of Astronomy 2009: IYA2009) er haldið að frumkvæði Alþjóðasambands stjarnvísindamanna (the International Astronomical Union: IAU) og UNESCO (the United Nations Educational, Scientific and Cultural Organization) undir kjörorðinu Undur alheimsins.
Á alþjóðlegu ári stjörnufræðinnar 2009 eru liðin 400 ár frá því Galíleó Galíleí gerði sínar fyrstu stjörnuathuganir með aðstoð sjónauka. Árið er að grunni til alþjóðleg hátíð þar sem áhersla er lögð á stjarnvísindi og framlag þeirra til samfélags og menningar. Hátíðarhöldin endurspeglast í viðburðum í einstökum bæjum og byggðarlögum, á landsvísu og á alþjóðlegum vettvangi.
Á ári stjörnufræðinnar verður reynt að fá almenning til þess að taka þátt í hinum ýmsu verkefnum. Í því átaki leika stjörnuáhugamenn stórt hlutverk og munu þeir skipuleggja og stjórna fjölda skemmtilegra viðburða. Nú þegar taka þúsundir þeirra þátt í undirbúningnum á alþjóðavettvangi og með þátttöku sinni mynda þeir stærsta tengslanet sem um getur í stjarnvísindum. Hér á landi er það fyrst og fremst Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness sem sér um þennan þátt.
Frekari upplýsingar:
Sævar Helgi Bragason
Formaður Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness og umsjónarmaður Stjörnufræðivefsins
Sími: 896-1984
Tölvupóstfang: saevar[hjá]stjornuskodun.is
Sverrir Guðmundsson
Stjörnufræðikennari og umsjónarmaður Stjörnufræðivefsins
Sími: 898-1979
Tölvupóstfang: sverrir[hjá]mr.is
Gagnlegar vefsíður
Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness, 600279-0339, Valhúsaskóla v. Skólabraut, 170 Seltjarnarnes
Stjarnvísindafélag Íslands (The Icelandic Astronomical Society), Dunhaga 3, 107 Reykjavík