Fjórða erindið í fyrirlestraröðinni ,,Undur veraldar: Undur alheimsins”, sem Stjarnvísindafélag Íslands og Raunvísindadeild Háskóla Íslands efna til í tilefni af alþjóðlegu ári stjörnufræðinnar, fer fram laugardaginn 4. apríl klukkan 14:00. Lárus Thorlacius, prófessor í eðlisfræði við NORDITA í Stokkhólmi, flytur þá erindi sem hann nefnir ,,Hugleiðingar um heimsfræði”. Venju samkvæmt verður fyrirlesturinn í stofu 132 í Öskju, Náttúrufræðihúsi Háskóla Íslands.
Lárus Thorlacius er prófessor í eðlisfræði og forstöðumaður Nordita, sem er norræn stofnun um fræðilega eðlisfræði í Stokkhólmi. Rannsóknarsvið Lárusar snúa að kennilegri eðlisfræði, skammtasviðsfræði, öreindafræði, þyngdarskammtafræði og strengjafræði.
# # #
Til blaðamanna
Alþjóðlegt ár stjörnufræðinnar 2009 (The International Year of Astronomy 2009: IYA2009) er haldið að frumkvæði Alþjóðasambands stjarnvísindamanna (the International Astronomical Union: IAU) og UNESCO (the United Nations Educational, Scientific and Cultural Organization) undir kjörorðinu Undur alheimsins.
Á alþjóðlegu ári stjörnufræðinnar 2009 eru liðin 400 ár frá því Galíleó Galíleí gerði sínar fyrstu stjörnuathuganir með aðstoð sjónauka. Árið er að grunni til alþjóðleg hátíð þar sem áhersla er lögð á stjarnvísindi og framlag þeirra til samfélags og menningar. Hátíðarhöldin endurspeglast í viðburðum í einstökum bæjum og byggðarlögum, á landsvísu og á alþjóðlegum vettvangi.
Á ári stjörnufræðinnar verður reynt að fá almenning til þess að taka þátt í hinum ýmsu verkefnum. Í því átaki leika stjörnuáhugamenn stórt hlutverk og munu þeir skipuleggja og stjórna fjölda skemmtilegra viðburða. Nú þegar taka þúsundir þeirra þátt í undirbúningnum á alþjóðavettvangi og með þátttöku sinni mynda þeir stærsta tengslanet sem um getur í stjarnvísindum. Hér á landi er það fyrst og fremst Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness sem sér um þennan þátt.
Frekari upplýsingar:
Gunnlaugur Björnsson
Stjarneðlisfræðingur
Raunvísindastofnun Háskólans
Dunhaga 3, 107 Reykjavík
Tölvupóstfang: gulli[hjá]raunvis.hi.is
Sævar Helgi Bragason
Formaður Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness
Sími: 896-1984
Tölvupóstfang: saevar[hjá]stjornuskodun.is
Gagnlegar vefsíður
Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness, 600279-0339, Valhúsaskóla v. Skólabraut, 170 Seltjarnarnes
Stjarnvísindafélag Íslands (The Icelandic Astronomical Society), Dunhaga 3, 107 Reykjavík