Alþjóðlegt ár stjörnufræðinnar 2009

Fyrirlestur um leitina að lífi á Mars miðvikudaginn 8. apríl kl. 14:00

Dr. David Des Marais, einn af stjórnendum Marskönnunar á vegum NASA, er nú á fyrirlestraferð um Norðurlönd og Eystrasaltslönd á vegum norræns samstarfsvettvangs um stjörnulíffræði (astrobiology). Ísland er síðasti viðkomustaður Davids, en í liðinni viku hefur hann flutt erindi í Tallinn, Turku, Stokkhólmi og Björgvin. David mun kynna nýjustu niðurstöður Marsrannsókna og framtíð þeirra í erindi, sem hann flytur í stofu 132 í Öskju þann 8. apríl kl. 14.

Könnunarför NASA , bæði jepplingar og brautarför, hafa á undanförnum árum uppgötvað að lífvænlegar aðstæður voru líklega fyrir hendi á Mars fyrir um þremur milljörðum ára. Jepplingurinn Opportunity fann vísbendingar um sölt stöðuvötn og grunnvatn. Spirit jepplingurinn fann berg sem veðrast hefur af snertingu við vatn og kísil sem fellur út á hverasvæðum. Þá hafa brautarför fundið steindir á víð og dreif um Mars sem bera glögg merki vatns.

David Des Marais er jarðefnafræðingur að mennt og hefur á ferli sínum stundað rannsóknir á tunglgrjóti, úthafshryggjum, loftsteinum, jarðhitasvæðum, fornbergi og örveruþekjum. Hann er einn lykilmanna í Marskönnun NASA um þessar mundir og er þátttakandi í leiðöngrunum Mars Exploration Rovers (Marsjepparnir), Mars Reconnaissance Orbiter og Mars Science Laboratory. Hann er höfundur nær 150 vísindagreina og bókarkafla og á sæti í ritstjórn tímaritanna Astrobiology og Geobiology. Rannsóknir þær, sem hann stýrir við NASA Ames Research Center eru kynntar á eftirfarandi heimasíðu: amesteam.arc.nasa.gov

# # #

Til blaðamanna
Alþjóðlegt ár stjörnufræðinnar 2009 (The International Year of Astronomy 2009: IYA2009) er haldið að frumkvæði Alþjóðasambands stjarnvísindamanna (the International Astronomical Union: IAU) og UNESCO (the United Nations Educational, Scientific and Cultural Organization) undir kjörorðinu Undur alheimsins.

Á alþjóðlegu ári stjörnufræðinnar 2009 eru liðin 400 ár frá því Galíleó Galíleí gerði sínar fyrstu stjörnuathuganir með aðstoð sjónauka. Árið er að grunni til alþjóðleg hátíð þar sem áhersla er lögð á stjarnvísindi og framlag þeirra til samfélags og menningar. Hátíðarhöldin endurspeglast í viðburðum í einstökum bæjum og byggðarlögum, á landsvísu og á alþjóðlegum vettvangi.

Á ári stjörnufræðinnar verður reynt að fá almenning til þess að taka þátt í hinum ýmsu verkefnum. Í því átaki leika stjörnuáhugamenn stórt hlutverk og munu þeir skipuleggja og stjórna fjölda skemmtilegra viðburða. Nú þegar taka þúsundir þeirra þátt í undirbúningnum á alþjóðavettvangi og með þátttöku sinni mynda þeir stærsta tengslanet sem um getur í stjarnvísindum. Hér á landi er það fyrst og fremst Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness sem sér um þennan þátt.

Frekari upplýsingar:

Þorsteinn Þorsteinsson
Jöklafræðingur, Veðurstofu Íslands
Sími:
Tölvupóstfang: thor[hjá]vedur.is

Sævar Helgi Bragason
Formaður Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness
Sími: 896-1984
Tölvupóstfang: saevar[hjá]stjornuskodun.is

Gagnlegar vefsíður

 

Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness, 600279-0339, Valhúsaskóla v. Skólabraut, 170 Seltjarnarnes
Stjarnvísindafélag Íslands (The Icelandic Astronomical Society), Dunhaga 3, 107 Reykjavík