Í tilefni af Alþjóðlegu ári stjörnufræðinnar ákvað Post Europe, samtök póstfyrirtækja í Evrópu, að helga árið 2009 stjörnufræði. Tvö íslensk frímerki koma út af þessu tilefni.
Þemað á frímerkinu með 105 kr. verðgildinu vísar til sólargangsmælinga Odds Helgasonar eða Stjörnu Odda um 1100. Þemað á frímerkinu með 140 kr. verðgildinu vísar hins vegar til stjörnuskoðunarturnsins á Lambhúsum á Álftanesi þar sem fyrstu opinberu stjörnuathuganirnar hérlendis voru gerðar á seinnihluta 18. aldar. Frímerkin hannaði Örn Smári Gíslason grafískur hönnuður.

Sjá má fleiri myndir af frímerkjunum á Stjörnufræðivefnum.
Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness, 600279-0339, Valhúsaskóla v. Skólabraut, 170 Seltjarnarnes
Stjarnvísindafélag Íslands (The Icelandic Astronomical Society), Dunhaga 3, 107 Reykjavík