
Dagana 29. júní til 13. júlí verður haldinn hér á landi alþjóðlegur sumarskóli í stjörnulíffræði á vegum NASA, NordForsk, Háskólans á Hawaii og Háskóla Íslands. Við skólann, sem ber heitið ,,Vatn, ís og uppruni lífs í alheimi”, kenna ýmsir af fremstu vísindamönnum heims á þessu sviði. Nemendur eru 43 framhaldsnemar frá Bandaríkjunum, Evrópu og Ástralíu. Mánudaginn 29. júní verður boðið upp á fræðslukvöld fyrir almenning af þessu tilefni. Þá flytja þrír erlendir vísindamenn stutta fyrirlestra um reikistjörnuna Mars, ístungl ytra sólkerfisins og halastjörnur í Sal 1 í Háskólabíói frá kl. 18:30 til 20:15. Að fyrirlestrunum loknum verður sýnd stutt fræðslumynd um leit að lífi á Suðurheimskautinu og á Mars.
Stjörnulíffræði er ný vísindagrein sem byggir á grunni líffræði, jarðfræði, efnafræði, eðlisfræði og stjarnvísinda. Stjörnulíffræðin er þó meira en slitur annarra vísindagreina. Hún sameinar undir einum hatti öll þau fræði sem einn daginn gætu svarað einni mikilvægustu spurningu mannsandans: Erum við ein í alheiminum?
,,Langt fram á 20. öld byggðu vangaveltur manna á lífi í alheimi fyrst og fremst á heimspekilegum forsendum fremur en vísindalegum,” segir Einar H. Guðmundsson, prófessor í stjarneðlisfræði við Háskóla Íslands og einn skipuleggjenda sumarskólans. ,,Það var ekki fyrr en á síðustu öld, samfara auknum skilningi á uppruna lífs og myndun sólkerfa, að hægt var að glíma við þessar spurningar á fræðilegan hátt,” bætir hann við.
Stjarnvísindi lögðu til hugmyndir um myndun og þróun stjarna og sólkerfa. Reikistjörnufræðin segir til um þróun reikistjarna og lofthjúpa þeirra og jarðvísindi hafa dregið upp nokkuð ítarlega mynd af jarðsögunni. Sameindalíffræðin hefur aukið skilning okkar á upphafi lífs og framþróun þess með hjálp efnafræðinnar sem varpar ljósi á þau ferli sem þar liggja til grundvallar. Líffræðingar hafa varpað ljósi á þróun lífvera sem byggir meðal annars á sameindalíffræði og þeim leifum lífvera sem steingervingafræðingar hafa grafið úr jörðu.
,,Á síðustu árum hafa yfir 400 reikistjörnur fundist í fjarlægum sólkerfum,” segir Sævar Helgi Bragason, starfsmaður við sumarskólann og formaður Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness. ,,Okkur grunar að til séu fjarreikistjörnur eins og jörðin sem hafa fljótandi vatn. Erfitt er að ímynda sér að reikistjarnan jörð sé eini staðurinn í öllum alheiminum þar sem víxlverkun vatns og lífrænna sameinda – sem til eru í miklu magni í geimnum – hafi leitt til þróunar lífs.”
Í sumarskólanum fræðast nemendur um myndun vatns í geimnum og hlutverk þess í myndun sólkerfa. Rætt verður um hvernig vatn safnaðist saman á yfirborði jarðar og hvernig líf náði að myndast í vatni við þær framandi aðstæður sem ríktu á jörðinni í árdaga. Nemendur skólans fræðast um þessa þætti með aðstoð íslenskra og erlendra vísindamanna og ferðalögum um íslenska jökla, eldfjöll og háhitasvæði.
,,Ísland er stjörnulíffræðingum mjög lærdómsríkt,” segir Sævar. ,,Hér á landi höfum við jökla og háhita þar sem líf þrífst við afar erfiðar aðstæður. Þess vegna þykir Ísland kjörinn vettvangur fyrir sumarskóla í stjörnulíffræði.”
Það er viðeigandi að sumarskóli í stjörnulíffræði fari fram á ári stjörnufræðinnar 2009, þegar 400 ár eru liðin frá því að Galíleó beindi stjörnusjónauka til himins, fyrstur manna. Árið 2009 markar líka 200 ára afmæli Charles Darwin og 150 ára útgáfuafmæli þróunarkenningar hans.
# # #
Til blaðamanna
Alþjóðlegur sumarskóli í stjörnulíffræði er haldinn dagana 29. júní til 13. júlí á vegum NASA, NordForsk, Háskólans á Hawaii og Háskóla Íslands. Skólann sækja 43 framhaldsnemendur frá Bandaríkjunum, Evrópu og Ástralíu. Við skólann kenna ýmsir af færustu vísindamönnum heims á þessu sviði. Almenningi verður boðið upp á fræðslukvöld mánudaginn 29. júní kl. 18:30 í Sal 1 í Háskólabíói af þessu tilefni.
Alþjóðlegt ár stjörnufræðinnar 2009 (The International Year of Astronomy 2009: IYA2009) er haldið að frumkvæði Alþjóðasambands stjarnvísindamanna og UNESCO undir kjörorðinu Undur alheimsins. Á alþjóðlegu ári stjörnufræðinnar 2009 eru liðin 400 ár frá því Galíleó Galíleí gerði sínar fyrstu stjörnuathuganir með aðstoð sjónauka.
NordForsk er sjálstæð norræn stjofnun sem styrkir rannsóknarstarf og vísindamenntun á Norðurlöndum og heyrir undir Norrænu ráðherranefndina. Fulltrúi Íslands í stjórn NordForsk er Guðrún Nordal prófessor við Háskóla Íslands.
Frekari upplýsingar má nálgast hjá:
Sævar Helgi Bragason
Starfsmaður sumarskólans og formaður Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness
Sími: 896-1984
Tölvupóstfang: saevar[hjá]stjornuskodun.is
Einar H. Guðmundsson
Formaður íslensku IYA2009-landsnefndairnnar
og formaður Stjarnvísindafélags Íslands
Raunvísindastofnun Háskólans
Dunhaga 3, 107 Reykjavík.
Símar: 5254800/4811 og 8626192
Gagnlegar vefsíður
Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness, 600279-0339, Valhúsaskóla v. Skólabraut, 170 Seltjarnarnes
Stjarnvísindafélag Íslands (The Icelandic Astronomical Society), Dunhaga 3, 107 Reykjavík