Alþjóðlegt ár stjörnufræðinnar 2009

Fræðslukvöld um stjörnulíffræði mánudaginn 29. júní kl. 18:30

Mánudaginn 29. júní fer fram fræðslukvöld um stjörnulíffræði fyrir almenning í tilefni af ári stjörnufræðinnar og alþjóðlegs sumarskóla í stjörnulíffræði, sem haldinn er hér á landi á vegum NASA, NordForsk, Hawaiiháskóla og Háskóla Íslands. Fræðslukvöldið nefnist „Rannsóknir á íshnöttum í sólkerfinu” (Exploring Other Icy Worlds) og þar flytja þrír erlendir vísindamenn stutta fyrirlestra um rannsóknir sínar á reikistjörnunni Mars, ístunglum ytra sólkerfisins og halastjörnum. Að fyrirlestrunum loknum verður sýnd stutt fræðslumynd frá SETI stofnunni í Bandaríkjunum um leit að lífi á Suðurheimskautinu og á Mars. Fræðslukvöldið fer fram í Sal 1 í Háskólabíói og stendur yfir frá kl. 18:30 til 21:30 með hléi á milli.

Dagskrá fræðslukvöldsins mánudaginn 29. júní í Sal 1 í Háskólabíói:

Tími:
Dagskrárliður:
18:30
Ice on Mars: New highlights from the Phoenix mission
David Fisher frá Rannsóknarmiðstöð Kanada
19:05
Icy moons in the outer solar system
Paul Helfenstein frá Cornellháskóla í Bandaríkjunum
19:40
Comets: Icy remnants of the early solar system
Karen Meech frá Hawaiiháskóla í Bandaríkjunum
20:15
Kaffihlé
Sala á tímariti stjörnufræðiársins
20:45
Kvikmyndasýning: Life on Ice - Antarctica and Mars
Dale Andersen frá Carl Sagan miðstöð SETI stofnunarinnar um rannsóknir á lífi í alheimi
21:30 Dagskrá lýkur

David Fisher mun í fyrirlestri sínum fjalla um niðurstöður Phoenix geimfarsins sem lenti norðan heimskautsbaugs á Mars í maí 2008. Phoenix fann vatnsís í miklu magni undir yfirborði reikistjörnunnar.

Paul Helfenstein mun í fyrirlestri sínum gefa stutt yfirlit yfir helstu fylgitungl Júpíters, Satúrnusar, Úranusar og Neptúnusar. Athyglinni verður beint að áhugaverðustu tunglunum: Evrópu, Enkeladusi, Japetusi, Títan og Tríton. Ennfremur verður stuttlega fjallað um Plútó og Karon.

Karen Meech mun í fyrirlesti sínum fjalla vítt og breitt um halastjörnur, þó einkum og sér í lagi niðurstöður Deep Impact verkefnisins þar sem lítið geimfar var látið rekast á halastjörnu árið 2005.

Allir eru hjartanlega velkomnir. Frítt inn að sjálfsögðu.

 

Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness, 600279-0339, Valhúsaskóla v. Skólabraut, 170 Seltjarnarnes
Stjarnvísindafélag Íslands (The Icelandic Astronomical Society), Dunhaga 3, 107 Reykjavík