Verðlaun voru auk þess veitt fyrir annað sæti í keppninni og var það Vignir Már Lýðsson, stúdent frá MR, sem þau hlaut: Celestron FirstScope stjörnusjónauka frá Sjónaukar.is, sérverslun og þjónustuaðila fyrir stjörnusjónauka á Íslandi.

# # #
Til blaðamanna
Alþjóðlegt ár stjörnufræðinnar 2009 (The International Year of Astronomy 2009: IYA2009) er haldið að frumkvæði Alþjóðasambands stjarnvísindamanna og UNESCO undir kjörorðinu Undur alheimsins.
Á alþjóðlegu ári stjörnufræðinnar 2009 eru liðin 400 ár frá því Galíleó Galíleí gerði sínar fyrstu stjörnuathuganir með aðstoð sjónauka. Árið er að grunni til alþjóðleg hátíð þar sem áhersla er lögð á stjarnvísindi og framlag þeirra til samfélags og menningar. Hátíðarhöldin endurspeglast í viðburðum í einstökum bæjum og byggðarlögum, á landsvísu og á alþjóðlegum vettvangi.
Á ári stjörnufræðinnar verður reynt að fá almenning til þess að taka þátt í hinum ýmsu verkefnum. Í því átaki leika stjörnuáhugamenn stórt hlutverk og munu þeir skipuleggja og stjórna fjölda skemmtilegra viðburða. Nú þegar taka þúsundir þeirra þátt í undirbúningnum á alþjóðavettvangi og með þátttöku sinni mynda þeir stærsta tengslanet sem um getur í stjarnvísindum. Hér á landi er það fyrst og fremst Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness sem sér um þennan þátt.
Frekari upplýsingar má nálgast hjá:
Einar H. Guðmundsson
Formaður íslensku IYA2009-landsnefndairnnar
og formaður Stjarnvísindafélags Íslands
Raunvísindastofnun Háskólans
Dunhaga 3, 107 Reykjavík.
Símar: 5254800/4811 og 8626192
Sævar Helgi Bragason
Formaður Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness
Raunvísindastofnun Háskóla Íslands
Dunhaga 3, 107 Reykjavík
Sími: 896-1984
Tölvupóstfang: saevar[hjá]stjornuskodun.is
Gagnlegar vefsíður
Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness, 600279-0339, Valhúsaskóla v. Skólabraut, 170 Seltjarnarnes
Stjarnvísindafélag Íslands (The Icelandic Astronomical Society), Dunhaga 3, 107 Reykjavík