Ert þú nemandi í framhaldsskóla? Hefur þú áhuga á stjörnufræði? Nú er tækifæri til þess að taka þátt í norrænni samkeppni með viðfangsefni í stjörnufræði að eigin vali. Í hverju Norðurlandanna um sig velur sérstök dómnefnd einn sigurvegara og munu norrænu sigurvegararnir ferðast saman til La Palma á Kanaríeyjum í október eða nóvember 2009. Þar munu þeir sem hópur skipuleggja og framkvæma stjörnuathuganir með Norræna sjónaukanum með góðri aðstoð stjörnufræðinga sem þar starfa. Norræni stjörnusjónaukinn (Nordic Optical Telescope: NOT) er fullkominn 2,6 m spegilsjónauki sem Íslendingar eiga hlut í. Ýmislegt annað spennandi verður gert í ferðinni.
Í íslenska hluta keppninnar verða einnig veitt vegleg verðlaun fyrir annað sætið, vandaður stjörnusjónauki í boði Sjónaukar.is.
Skipulag íslenska hluta keppninnar er á vegum Stjarnvísindafélags Íslands. Keppnin er haldin í tilefni Alþjóðlegs árs stjörnufræðinnar 2009 (IYA2009) þar sem 400 ára afmælis stjörnusjónaukans er minnst með margvíslegum hætti.
Reglur keppninnar: Þátttakendur þurfa að skrifa ritgerð um eitthvert stjarnvísindalegt viðfangsefni. Þig hefur kannski lengi dreymt um að beina risastórum sjónauka að einhverju fyrirbæri himingeimsins, hugsanlega svartholi, fjarlægri reikistjörnu eða dularfullri gasþoku þar sem nýjar stjörnur eru í fæðingu? Þá lýsir þú fyrir okkur hvað þú vilt gera og hvernig. En þú getur líka látið gamminn geisa um stjörnufræði og alheiminn í víðara samhengi eða á skáldlegri hátt. Þá sendir þú okkur bara texta fullan af andagift. Þú ræður því hvernig þú vilt koma hugmyndum þínum á framfæri við okkur.
Hvernig á að skila? Þú hefur auðvitað frá miklu að segja en þú verður að geta útskýrt það með minna en 3000 orðum. Heppilegast er að skila ritgerðinni á Word-sniði eða pdf-sniði, og þú verður að láta fylgja forsíðu þar sem þú gefur verkefni þínu nafn og tilgreinir eigið nafn ásamt skóla, bekk, heimilisfangi og tölvupóstfangi.
Hverjir geta tekið þátt? Keppnin er opin öllum nemendum í íslenskum framhaldsskólum.
Hvenær þarf að skila? Í síðasta lagi 1. júní 2009. Tilkynnt verður um úrslit fyrir 1. september 2009.
Hvert á að skila? Þú skilar til eðlisfræði- og/eða stjörnufræðikennarans í þínum skóla.
Nánari upplýsingar: Vilhelm Sigmundsson: vilhelm[hjá]verslo.is
Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness, 600279-0339, Valhúsaskóla v. Skólabraut, 170 Seltjarnarnes
Stjarnvísindafélag Íslands (The Icelandic Astronomical Society), Dunhaga 3, 107 Reykjavík