Alþjóðlegt ár stjörnufræðinnar 2009

Saga

Á ári stjörnufræðinnar er þess meðal annars minnst að 400 ár eru liðin frá því Galíleó Galíleí beindi hinum nýuppfundna stjörnukíki til himins árið 1609 og sá þau undur og stórmerki sem hann síðar lýsti í bókinni Sidereus nuncius (Sendiboða stjarnanna).

Galíleó Galíleí

Árið 1609 varð einnig annar tímamótaviðburður í stjörnufræði þegar Jóhannes Kepler birti niðurstöður sínar um brautir reikistjarnanna í bókinni Astronomia nova (Ný stjörnufræði).

Jóhannes Kepler

Á ári stjörnufræðinnar er beggja þessara atburða minnst með alþjóðlegum ráðstefnum og greinaskrifum. Jafnframt verður hin langa saga stjarnvísinda kynnt með margvíslegum hætti. 

Ritsmíðar um sögu stjarnvísinda, meðal annars á Íslandi, er að finna hér.

Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness, 600279-0339, Valhúsaskóla v. Skólabraut, 170 Seltjarnarnes
Stjarnvísindafélag Íslands (The Icelandic Astronomical Society), Dunhaga 3, 107 Reykjavík