Í tilefni af ári stjörnufræðinnar verður unnið að kynningu á stjörnufræði meðal nemenda og kennara í grunn- og framhaldsskólum með námskeiðum, viðburðum og dreifingu námsefnis. Hægt er að fá frekari upplýsingar með því að senda tölvupóst á netfangið This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it .
Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness og Stjörnufræðivefurinn bjóða upp á námskeið um stjörnufræði fyrir kennara. Þrjú námskeið voru haldin í byrjun nóvember og verða fleiri námskeið í vor og framhaldsnámskeið næsta haust. Dagsetningar á námskeiðunum hafa ekki verið fastsettar en nánari upplýsingar um námskeiðin og skráningu í þau má finna á Stjörnufræðivefnum.
![]() |
| Kennarar á kennaranámskeiði í nóvember 2008 að læra um kvartilaskipti tunglsins. Mynd: Grétar Örn Ómarsson |
Horft til himins (e. Eyes on the Skies) er opinber mynd stjörnufræðiársins og fjallar um sögu sjónaukans. Myndinni verður dreift í alla skóla á landinu í tilefni af ári stjörnufræðinnar.

Stjörnuver er sýndarheimur þar sem áhorfendur sitja inni í kúlulaga hvelfingu og sérhannað sýningartæki varpar mynd af stjörnuhimninum á veggi hennar. Í stjörnuveri fræðast áhorfendur um stjörnurnar, reikistjörnur, tunglið og önnur fyrirbæri alheimsins. Nánari upplýsingar um stjörnuverið má finna á vefsíðu Náttúrumynda.
![]() |
| Íslenskir grunn- og framhaldsskólanemendur eiga þess kost að heimsækja Stjörnuverið. Mynd: Snævarr Guðmundsson |
Unnið er að því að taka saman námsefni um stjörnufræði fyrir öll þrjú stig grunnskólans sem dreift verður næsta haust.
![]() |
| Ung og upprennandi stjörnuáhugakona horfir í gegnum stjörnusjónauka. Mynd: Snævarr Guðmundsson |
Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness, 600279-0339, Valhúsaskóla v. Skólabraut, 170 Seltjarnarnes
Stjarnvísindafélag Íslands (The Icelandic Astronomical Society), Dunhaga 3, 107 Reykjavík