Eitt mikilvægasta markmið stjörnufræðiársins er að sýna jarðarbúum stjörnuhimininn. Af því tilefni stendur Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness fyrir fjölmörgum stjörnuskoðunarkvöldum fyrir almenning á árinu. Þar gefst meðal annars kostur á að kíkja í gegnum stærsta stjörnusjónauka landsins sem og nokkra af fjölmörgum sjónaukum félagsmanna. Stjörnuskoðunarkvöld félagsins hafa ævinlega verið vel sótt og verða þau auglýst sérstaklega síðar.
Á ári stjörnufræðinnar standa Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness og Stjörnufræðivefurinn fyrir námskeiðum í stjörnuskoðun. Námskeiðin miða að því að gefa áhugasömum kost á að kynnast undrum næturhiminsins með eigin stjörnusjónauka undir handleiðslu kennara.
Í boði eru tvenns konar námskeið eftir aldurshópum, annars vegar barnanámskeið og hins vegar fullorðinsnámskeið. Nánari upplýsingar og skráning í þessi vinsælu námskeið eru á vefsíðu Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness.
Sumarið 2009 gefst fólki kostur á að virða fyrir sér sólina í gegnum sérstaka sólarsjónauka. Sólarsjónaukarnir sýna okkur á tilkomumikinn hátt að stjarnan okkar er virk. Með þeim er hægt að skoða síbreytilega sólbletti, sólbendla og sólstróka svo fátt eitt sé nefnt.
Líkt og síðustu ár verða félagsmenn í Stjörnuskoðunarfélaginu með sjónaukana á sólinni á þjóðhátíðardegi Íslendinga ef veður leyfir. Sólskoðunin verður auglýst sérstaklega síðar.
![]() |
| Ríflega 700 manns virtu fyrir sér sólina í gegnum sólarsjónauka félagsmanna í Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness þann 17. júní 2008. Mynd: Tryggvi Kristmar Tryggvason. |
Fólk þarf ekki að eiga stjörnusjónauka til þess að stunda stjörnuskoðun. Með berum augum má auðveldlega sjá stjörnumerkin og björtustu stjörnurnar og með handsjónauka má greina ýmis fjarlæg fyrirbæri eins og gíga á tunglinu og fylgitungl Júpíters. Það eina sem fólk þarf að gera er að fara út og líta til himins.
Á ári stjörnufræðinnar mun Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness reyna að vekja sérstaka athygli almennings á ljósmengun og hvernig hún dregur úr fegurð næturhiminsins, einkum á þéttbýlissvæðum. Í verkefninu Dimmur næturhiminn (Dark Skies Awareness) er ráðist beint að vandanum, meðal annars með því að efna til stjörnutalningarkvölda þar sem almenningur er hvattur til að kanna hversu margar stjörnur má sjá með berum augum á ákveðnum hluta hvelfingarinnar. Fólk verður yfirleitt mjög hissa þegar niðurstöður þess eru bornar saman við gögn frá stöðum eru algjörlega lausir við ljósmengun.
![]() |
| Ljósmengun frá Reykjavík séð frá Þingvöllum í 50 km fjarlægð. Ljósmengunin frá Friðarsúlunni í Viðey sést vel á myndinni. Mynd: Sævar Helgi Bragason |
Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness, 600279-0339, Valhúsaskóla v. Skólabraut, 170 Seltjarnarnes
Stjarnvísindafélag Íslands (The Icelandic Astronomical Society), Dunhaga 3, 107 Reykjavík