Alþjóðlegt ár stjörnufræðinnar 2009

Tímaritið Undur alheimsins - Alþjóðlegt ár stjörnufræðinnar

Út er komið ritið Undur alheimsins - Alþjóðlegt ár stjörnufræðinnar sem gefið er út af Stjörnuskoðunarfélagi Seltjarnarness í tilefni stjörnufræðiársins. Blaðið er afar veglegt og telur 86 ríkulega myndskreyttar blaðsíður. Mjög er vandað til útgáfunnar og í tímaritinu er fjöld fróðlegra frumsamdra greina eftir íslenska vísindamenn og stjörnuáhugamenn.

Í tímaritinu eru greinar um Norræna stjörnusjónaukann sem Háskóli Íslands á hlut í, gammablossa sem eru mestu hamfarir sem þekkjast í náttúrunni, hulduefni og hvernig svonefndar þyngdarlinsur hjálpa okkur að öðlast skilning á því. Einnig eru greinar um ljósmyndun reikistjarnanna, niðurstöður Fönix geimfarsins á Mars og grein um hvernig hægt er að nota íslensk fjöll til þess að læra um Mars. Síðast en ekki síst er heilmikið af upplýsingum um áhugaverð fyrirbæri á stjörnuhimninum sem allir stjörnuáhugamenn geta skoðað með sínum eigin stjörnusjónauka.

Blaðið er selt á öllum þeim viðburðum sem efnt er til á ári stjörnufræðinnar. Blaðið er einnig fáanlegt í lausasölu hjá Bóksölu stúdenta og í bókaverslunum Pennans-Eymundsson um land allt.

Allar greinar blaðsins eru ritaðar á aðgengilegan hátt af fremsta stjarnvísindafólki okkar Íslendinga. Greinarnar ættu því að höfða til breiðs hóps áhugafólks um vísindi almennt. Efnistök greinanna og uppsetning blaðsins er í ætt við almenn vísindarit á borð við Scientific American og stjarnvísindatímarit eins og Astronomy og Sky & Telescope. Aldrei áður hefur verið gefið út jafn veglegt blað um stjarnvísindi og stjörnuskoðun á Íslandi.

Blaðinu er ætlað að endast út stjörnufræðiárið. Þannig eru til að mynda upplýsingarnar um stjörnuskoðun nothæfar allt árið og jafnvel næstu ár á eftir. Því má segja að blaðið sé að miklu leyti tímalaust. Greinarnar sjálfar munu einnig koma til með að nýtast skólafólki í grunn- og framhaldsskólum sem heimildir í ritgerðir og önnur skólaverkefni.

Útgáfa á þessu glæsilega riti er stór þáttur í starfi Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness á ári stjörnufræðinnar. Aldrei hefði verið ráðist í þessa útgáfu án stuðnings frá góðum aðilum. Þeir eru:

Allur ágóði af sölu blaðsins rennur óskiptur í framtíðaraðstöðusjóð félagsins. Það er því um að gera að styrkja starf félagsins með kaupum á blaðinu.

Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness, 600279-0339, Valhúsaskóla v. Skólabraut, 170 Seltjarnarnes
Stjarnvísindafélag Íslands (The Icelandic Astronomical Society), Dunhaga 3, 107 Reykjavík